Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Tónlist

Karlakvöld á Kringlukránni

 

glímaFimmtudagskvöldið 20. nóvember ætlar Salka að halda upplestrarkvöld á Kringlukránni, þar sem lesið verður uppúr útkomnum bókum. Meðal gesta verður Ari Kr. Sæmundsen, sem sendi frá sér smásagnasafnið Með stein í skónum síðastliðið sumar. Haraldur Jónsson þýðandi Hugmyndabókarinnar og Jón Lárusson þýðandi bókarinnar Vísindin að ríkidæmi munu einnig lesa upp og kynna þýðingar sínar. Jafnframt mun stórleikarinn Sigurður Skúlasaon lesa uppúr metsölubókinni Síðasti fyrirlesturinn. Svo munu trúbatrixurnar Myrra og Elíza bæta kvenlegu kryddi í blönduna og spila nokkur lög.


Sölkukvöld með Maxine og Dísu


 

dísaReikimeistarinn og metsöluhöfundurinn Maxine Gaudio kynnir lífsspeki sína og metsölubókina Ferðalagið að kjarna sjálfsins í Gyllta salnum á Hótel Borg, fimmtudaginn 13. nóvember kl. 20.00.

 

Auk hennar mun tónlistarkonan Dísa Jakobsdóttir segja frá kynnum sínum af Maxine en hún hefur verið andlegur leiðbeinandi hennar um skeið. Dísa gerði sér sérstaka ferð frá Kaupmannahöfn til að vera með þetta kvöld og mun að sjálfsögðu taka nokkur lög í lokin. Malín Brand, þýðandi bókarinnar, mun lesa upp úr bókinni og segja örstutt frá tengslum sínum við Maxine.maxine_rgb

 


Ragnhildur - söngleikur í fjórum þáttum

PallEggertRiddarar sönsins munu ríða suður yfir heiðar og spila og syngja í Iðnó á miðvikudagskvöld kl. 20:30. Fremstur fer Páll Ólafsson skáld og riddari frá Hallfreðarstöðum í Hróarstungu. Aðrir riddarar eru: Þórarinn Hjartarson og Ösp Kristjánsdóttir, söngur, Hjörleifur Valsson, fiðla, Kristinn H. Árnason, gítar, Birgir Bragason, bassi. Í bland við sönginn les Árni Hjartarson úr nýrri ástarljóðabók Páls.

PICT0265Eg_skal_kveda_um_eina_thig


Tarot kvöld

Bodskort


Ástarljóð í Kiljunni

Egill Helgason fjallaði ítarlega um ljóðabókina Eg skal kveða um eina þig alla mína daga í Kiljunni í gær. Þar tók hann m.a. svo til orða að bókin væri „einhver fallegasta bók sem ég hef séð lengi á Íslandi, kápan, bandið og pappírinn..." Við þökkum hrósið.

Ást, kynlíf og hjónaband

Málþing í tilefni af útkomu bókar dr. Sólveigar Önnu Bóasdóttur verður haldið á Þjóðminjasafninu föstudaginn 3. október kl. 14 - 16.
Fyrirlesarar verða:

Guðrún D.Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands: "Ofbeldi og mannréttindi"

Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kynfræðingur: “Réttindi kynverundar - hvað er langt í land?”

Dr. Sigríður Guðmarsdóttir, prestur: “Menning, kirkja og hjónaband í hinsegin ljósi”

Þorvaldur Kristinsson, bókmenntafræðingur: "Samkynhneigðin og ástin"

Sr. Bjarni Karlsson: "Samkynhneigð og kristin siðfræði"


Fundarstjóri er Helgi Hjörvar Alþingismaður.
Í upphafi mun dr. Sólveig Anna ávarpa og setja málþingið og í lokin verður boðið upp á fyrirspurnir til hennar og framsögumanna


Rósaleppar eru verðugt viðfangsefni

 

Þekkta prjóna-netblaðið: Knitter´s review gaf Rósaleppa-prjónabókinni hennar Héléne Magnússon góða dóma. Í greininni segir Lela Nargi frá rósaleppa-prjóni og hvernig konur prjónuðu mynstur inní roðskinnsskónna sína og vönduðu sig mjög þó svo fáir sem engir myndu nokkurn tímann sjá það - því jú, það var hulið undir iljum fólksins. Hún minnist einnig á að þess konar prjón hafi í raun ekki haft neinn tilgang í nútímanum og var að leggjast í gleymsku, þangað til Héléne enduruppgötvaði og endurnýjaði mynstrið. Hún hefur hannað ótal flíkur, frá peysum að vettlingum og þannig dustað rykið af þessum ótrúlega fallegu mynstrum.

Lela segir uppskriftirnar vera flóknar, fallegar og hugrakkar og séu ögrandi verkefni fyrir prjónara sem sé tilbúin til að prufa eitthvað nýtt og töfrandi.  

Hægt er að kaupa nýja uppskrift eftir Hélene eingöngu á http://www.lelanarginews.blogspot.com/

portraithm


Eg skal kveða um eina þig alla mína daga

Mín kvæði eru minn innri maður en engin uppgerðarpóesí,“ skrifaði Páll Ólafsson um kveðskap sinn, en í vikunni kemur út hjá Sölku bókin; Eg skal kveða um eina þig, alla mína daga, ástarljóð Páls Ólafssonar. Bókin kemur út bæði í harðbandi og sem kilja. Hún er 352 blaðsíður og prentuð hjá Odda ehf. Sigrún Sigvaldadóttir hannaði útlit bókarinnar.

Eftir Pál liggur eitt mesta safn ástarljóða nokkurs íslensks skálds og núna er þessum arfi í fyrsta sinn safnað í eina bók og birtur fjöldi kvæða og vísna sem ekki hafa áður sést á prenti. Ástarljóðin eru fyrst og síðast skáldleg tilfinningatjáning en í tímaröð mynda þau jafnframt ástarsögu þeirra Páls og Ragnhildar Björnsdóttur.
 
Þórarinn Hjartarson tók efnið saman of skrifarskýringartexta. Hann hefur áður fengist við Pál Ólafsson og sýnt fram á að fá skáld, ef nokkur, eru söngrænni en Páll og hann á sinn stað í hjarta þessarar þjóðar. Það sýnir Þórarinn í verki því hann er ennfremur einn fimmti af hópnum Riddarar söngsins sem kemur saman endrum og eins til að hylla Pál Ólafsson.

Riddarar söngsins munu troða upp í versluninni Tólf tónum á Skólavörðustíg föstudaginn 13. júní kl. 17.00 og í Café Flóru í Grasagarðinum í Laugardal laugardagskvöldið 14. júní kl. 21 í tilefni af útgáfu bókarinnar. Hópurinn er svo skipaður: Þórarinn Hjartarson og Ösp Kristjánsdóttir syngja, Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu, Kristinn H. Árnason á gítar og Birgir Bragason á kontrabassa. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Salka skrifar

Bókaútgáfan Salka ehf
Bókaútgáfan Salka leggur megináherslu á útgáfu bóka sem höfða til kvenna en einnig handbóka af ýmsu tagi fyrir alla.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Bækur

Nýjar bækur

  • Rafn Hafnfjörð og Ari Trausti Guðmundsson: Focus on Iceland
    Falleg ferðahandbók með yfir 600 myndum af Íslandi sem teknar voru af Rafni Hafnfjörð með texta eftir Ara Trausta Guðmundson
    *****

Tónhlaða

Heiðdís Norðfjörð - Mídas konungur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband