Leita í fréttum mbl.is

Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar


 

Út er komin bókin Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnarhjá Sölku. Í bókinni er rakin saga ræktunarblálandsdrottning-kápa á Íslandi, og reyndar víða um heim, með sérstakri áherslu á upphaf kartöfluræktar. Höfundurinn, Hildur Hákonardóttir, hefur ferðast allt frá Suður – Ameríku til Eyrarbakka og kynnt sér hvernig fólk þróaði ræktunaraðferðir. Hún fjallar um mismunandi tegundir og hverjar duga best í mismunandi umhverfi. Með einstökum frumleika og sköpunargleði tengir hún kartöfluræktun íslenskri menningarsögu og fjallar um merka menn og konur sem lögðu hönd á plóg í beinni og óbeinni merkingu. Þar má nefna Baldvin Einarsson, Vilhelmínu Lever, Eggert Ólafsson og Elísabetu Englandsdrottningu.

 

Blálandsdrottningin hefur líklega borist hingað með frönskum skútum. Hún er ein af mörgum afbrigðum hinnar auðmjúku kartöflu sem hefur verið í öndvegi á borðum Íslendinga alla tuttugustu öldina. Nafn bókarinnar vísar þó einnig til hinnar hugrökku og hjartastóru söguhetju sem varð fyrst kvenna á Íslandi til að hafa tekjur af kartöflurækt.Bókin kemur út sem sem kilja og er 272 blaðsíður. Hún er prentuð í Lettlandi og Margrét E. Laxness gerði kápu, Oddi sá um umbrot en Hildur Hákonardóttir hannaði útlit bókarinnar. Helgi Magnússon hafði umsjón með texta.

 

Hildur Hákonardóttir sem einnig er höfundur hinnar sívinsælu bókar Ætigarðurinn – handbók grasnytjungs er þekkt fyrir líflega og grípandi frásagnargleði. Bókin skartar fjölda litmynda ásamt ítarlegum upplýsingum um heimildir.

 

Bókin kemur út í tilefni 250 ára afmælis kartöfluræktar á Íslandi og ennfremur er 2008 ár kartöflunnar hjá Sameinuðu þjóðunum. Hildur mun halda fyrirlestur, um karöflurækt á Íslandi, í Grasagarðinum í Laugardal, fimmtudaginn 14 ágúst kl. 20:00. Allir velkomnir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Salka skrifar

Bókaútgáfan Salka ehf
Bókaútgáfan Salka leggur megináherslu á útgáfu bóka sem höfða til kvenna en einnig handbóka af ýmsu tagi fyrir alla.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Nýjar bækur

  • Rafn Hafnfjörð og Ari Trausti Guðmundsson: Focus on Iceland
    Falleg ferðahandbók með yfir 600 myndum af Íslandi sem teknar voru af Rafni Hafnfjörð með texta eftir Ara Trausta Guðmundson
    *****

Tónhlaða

Heiðdís Norðfjörð - Mídas konungur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband