Leita í fréttum mbl.is

Amen í dönskum dómi

 afleggjarakilja_796396.jpgTine Marie Winther, bókmenntagagnrýnandi á dagblaðinu Politiken í Danmörku, líkir Afleggjara Auðar A. Ólafsdóttur við gullaldarmálverk – eða fallega altaristöflu. Í dóminum, sem lesa má í heild sinni hér, ítrekar Winther kristilegar vísanir bókarinnar með því að kalla hana fallega og undarlega systur Da Vinci lykilsins. Þó án krimma-vinkils eða andstyggilegheita:

„Fyrst og fremst er svo notalegt að lesa skáldsögu þar sem ekki er að finna eina einustu vondu manneskju. Persónurnar geta verið séðar og jafnvel notfært sér annað fólk, en verra verður það ekki og það gerist í mesta lagi til þess að fá í gegn einhvern minniháttar greiða.“

Dómurinn er sérlega jákvæður, persónusköpun Auðar þykir trúverðug, handverki og skáldskapargáfu hrósað í hástert. Hún mælir eindregið með þessu fallega, sérstaka og verðuga framlagi Íslendinga til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. AMEN!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Salka skrifar

Bókaútgáfan Salka ehf
Bókaútgáfan Salka leggur megináherslu á útgáfu bóka sem höfða til kvenna en einnig handbóka af ýmsu tagi fyrir alla.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Nýjar bækur

  • Rafn Hafnfjörð og Ari Trausti Guðmundsson: Focus on Iceland
    Falleg ferðahandbók með yfir 600 myndum af Íslandi sem teknar voru af Rafni Hafnfjörð með texta eftir Ara Trausta Guðmundson
    *****

Tónhlaða

Heiðdís Norðfjörð - Mídas konungur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband