Leita í fréttum mbl.is

Ástin liggur í loftinu

PICT0283og bók Þórarins Hjartarsonar um ástarljóð Páls Ólafssonar Eg skal kveða um eina þig er komin í fyrsta sæti metsölulistans í flokki skáldverka. Bókin rennur út og er upplagið óðum að klárast. Páll lifði ævidaga sína nær því á enda án þess að út kæmi eftir hann ljóðabók en það kom ekki í veg fyrir að menn kynnu fleiri ljóð og vísur eftir hann en nokkurt annað skáld. Hann á greinilega enn sinn stað í hjörtum þjóðarinnar þó hann hafi ekki fengið sess opinbers þjóðskálds, því þjóðin lærði og kann enn fjölmörg ljóð hans sem fljúga léttum vængjum um landið. 

Mikilvægur hluti bókaútgáfu

PostulinMeira mætti vissulega vera gefið út af hljóðbókum á Íslandi og er það eitthvað sem betur mætti fara hjá íslenskum forlögum. Hljóðbækur þjóna ekki eingöngu blindum eða sjónskertum heldur hefur lesblint fólk löngum notið góðs af þeim og auk þess er alltaf gaman að hlusta á upplestur góðra bóka við leik og störf. Við hjá Sölku höfum ekki látið okkar eftir liggja í hljóðbóka útgáfu og eigum ýmislega titla á lager. 

Hér er listi yfir titlana sem í boði eru:

Þjóðsögur Jóns Árnasonar
Emil í Kattholti
Ævintýri H.C. Andersen 1
Ævintýri H.C. Andersen 2

Kátir voru karlar
Æðrulaus mættu þau örlögum
Lífskraftur á landi og sjó
Ótuktin cd
Postulín cd
Sögur fyrir svefninn 1 cd

Sögur fyrir svefninn 2 cd
Fyrst ég gat hætt cd Blöndukúturinn cd Borgfirsk blanda eftirminnilegir atburðir cd Borgfirsk blanda kynlegir kvistir cd


mbl.is Hljóðbókamarkaðurinn stækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prjónablogg

IMG_0060Hélene Magnússon, - sú hin sama og færði okkur leyndarmál franskrar salatsósu og kenndi okkur að prjóna rósaleppaprjón í nýmóðins stíl, var að opna prjónablogg; www.helenemagnusson.blogspot.com. Prjónablogg eru orðin vinsæll viðkomustaður prjónaáhugafólks - sem er alltaf að fjölga, til að fá hugmyndir og einnig til að sjá hvað aðrir prjónarar eru að bardúsa.
 

Riddarar söngsins

PICT0281gerðu stormandi lukku síðastliðið laugardagskvöld á Café Flórunni. Færri komust að en vildu á þennan einstaka viðburð sem tónleikarnir voru. Þau, sem kalla sig Riddara söngsins, eru: Þórarinn Hjartarson og Ösp Kristjánsdóttir syngja, Kristinn H. Árnason spilar á gítar, Birgir Bragason á kontrabassa og Hjörleifur Valsson leikur ótrúlegar kúnstir á fiðluna. Þórarinn rakti ástarsögu Páls og Ragnhildar og inn á milli sungu þau og Árni Hjartarson las nokkur áhrifamikil ljóð. Þau fengu þvílíkar undirtektir að þakið ætlaði af húsinu og allar bækurnar seldust upp og kalla þurfti til fleiri bækur til metta fjöldan - hungraðan í ljóð Páls Ólafssonar.

Myndir af atburðinum eru í albúmi á kantinum hér til vinstri og þar er hægt að sjá gleðina og hæfileikana sem fóru saman þetta sumarkvöld í júní. 


Eg skal kveða um eina þig alla mína daga

Mín kvæði eru minn innri maður en engin uppgerðarpóesí,“ skrifaði Páll Ólafsson um kveðskap sinn, en í vikunni kemur út hjá Sölku bókin; Eg skal kveða um eina þig, alla mína daga, ástarljóð Páls Ólafssonar. Bókin kemur út bæði í harðbandi og sem kilja. Hún er 352 blaðsíður og prentuð hjá Odda ehf. Sigrún Sigvaldadóttir hannaði útlit bókarinnar.

Eftir Pál liggur eitt mesta safn ástarljóða nokkurs íslensks skálds og núna er þessum arfi í fyrsta sinn safnað í eina bók og birtur fjöldi kvæða og vísna sem ekki hafa áður sést á prenti. Ástarljóðin eru fyrst og síðast skáldleg tilfinningatjáning en í tímaröð mynda þau jafnframt ástarsögu þeirra Páls og Ragnhildar Björnsdóttur.
 
Þórarinn Hjartarson tók efnið saman of skrifarskýringartexta. Hann hefur áður fengist við Pál Ólafsson og sýnt fram á að fá skáld, ef nokkur, eru söngrænni en Páll og hann á sinn stað í hjarta þessarar þjóðar. Það sýnir Þórarinn í verki því hann er ennfremur einn fimmti af hópnum Riddarar söngsins sem kemur saman endrum og eins til að hylla Pál Ólafsson.

Riddarar söngsins munu troða upp í versluninni Tólf tónum á Skólavörðustíg föstudaginn 13. júní kl. 17.00 og í Café Flóru í Grasagarðinum í Laugardal laugardagskvöldið 14. júní kl. 21 í tilefni af útgáfu bókarinnar. Hópurinn er svo skipaður: Þórarinn Hjartarson og Ösp Kristjánsdóttir syngja, Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu, Kristinn H. Árnason á gítar og Birgir Bragason á kontrabassa. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Gleðifréttir

50crazyHugmyndabókin hans Fredriks Häréns virðist vera vinsæl útskriftargjöf því hún er komin uppí 5 sæti metsölulistans í flokki handbóka/fræðibóka og ævisagna og  hin nýja og stórskemmtilega ferðbabók 50 Crazy things to do in Iceland er í 13 sæti sama lista. 50 crazy (eins og við hérna uppá Sölku köllum hana) er greinilega að slá í gegn því ekki eru margar vikur síðan hún kom út og hún er strax komin á metsölulistan.

 Snæfríður Ingadóttir, sem tók saman 50 klikkaðar hugmyndir um það sem hægt er að gera á Íslandi, er að klára Leiðsögumannaskólann og notaði sérfræðiþekkingu sína þegar hún skrifaði bókina. Meðal þeirra 50 hugmynda sem eru í bókinni er.... - við segjum ekki frá - ef þið viljið vita það þá verðið þið að kíkja í bókina.

 


Aðdáandablogg

Bókin hennar Elizabeth Gilbert; Eat pray love hefur fengið þvílíkar viðtökur síðan hún kom út fyrir tveimur árum að ekki nóg með það að konur eru farnar að leggja uppí ferðalög um Evrópu til að finna sjálfar sig heldur er til heilt blogg sem fjallar bara um bókina, umfjöllun um bókina og karaktera úr bókinni.

eatpraylovecoffeemugBloggið kallast The info-news blog for fans of Eat Pray Love    og þar kemur meðal annars fram mynd og viðtal við einn karakterinn og vel er fylgst með viðtölum við Liz og því sem í þeim kemur fram. 

 

 


Hinn almenni bloggari rýnir í Afleggjarann

Ekki eru eingöngu mikilsvirtir gagnrýnendur á bókmenntasíðum markátakandi, heldur hefur fólkið af götunni líka sitt að segja um bókmenntir heimsins. Skoðun Jóns og séra Jóns eru báðar jafnmikilvægar og því er einstaklega gaman að rekast á greinargerð óbreytts borgara um eina af bókina okkar.

afleggjarakilja Óli Ágústar las Afleggjaran eftir Auði A. Ólafsdóttur, sem var að koma út á kilju, og hafði ánægju af, segir söguna og málfarið búa yfir dásamlegum þokka og ennfremur að Auður sé frábær rithöfundur. Hægt er að lesa gagnrýnina í smáatriðum hér


Gagnrýni af Kistunni

Helga Birgisdóttir bókagagnrýnandi hjá Kistunni.is hafði bara fallega hluti um Einstaka mömmu að segja þegar hún fjallaði um hana fyrr í vetur. Einstök mamma er eftir Bryndísi Guðmundsdóttur talmeinafræðing og hlaut barnabókaverðlaun  Menntaráðs Reykjavíkur um daginn.

 

svona hljómar gagnrýnin;  

 

Ljúf og falleg saga

með indælum myndum

Einstök mamma er ljúf saga um litla stúlku, Ásdísi, sem á heyrnalausa móður. Bókin samanstendur af nokkrum sjálfstæðum frásögnum sem, eins og fram kemur í eftirmála, „hafa þann tilgang að auka skilning og vekja börn til umhugsunar um að ekki eru allir foreldrar eins“ (36). Sagan fjallar að mestu um upplifun Ásdísar af því að eiga heyrnarlausa móður og sagt er frá vandamálum, eða öllu heldur áskorunum, sem því fylgir. Tungumál heyrnarlausa er einnig til umfjöllunar. Krökkunum í hverfinu finnst mamma Ásdísar tala undarlega og telpunni finnst gaman að kunna nokkuð svona sérstakt en verður stundum þreytt á því að fólk skuli í sífellu vera að undra sig á móður hennar eða spyrja um hana.

 

Sagan er ljúf og ágætlega skemmtileg og eins og fram kemur í kaflanum „Nýir nágrannar“ tala ekki allir eins – en það er bara allt í lagi. Textinn rennur ljúflega áfram, en er svolítið fullorðinslegur miðað við hvað Ásdís virðist eiga að vera ung, en slíkt er raunar alvanalegt með boðskapsbækur á borð við Einstaka mömmu. Myndir Margrétar E. Laxness eru venju samkvæmt fallegar og styðja vel við textann. Það er mikilvægt að gleyma því ekki þegar bækur á borð við Einstaka mömmu eru annars vegar, bækur sem fullorðnir lesa vanalega fyrir börn, að myndirnar á hverri síðu verða að endurspegla og allra helst bæta einhverju við textann. Margréti tekst það verkefni með miklum ágætum og sérstaklega hafði ég gaman að af myndunum þar sem hún teiknar fjölskyldumeðlimi að tala táknmál. Þessar myndir og stafróf táknmálsins sem er einnig að finna í bókinni koma kannski til með að hvetja ung börn til að æfa sig í að stafa, eða jafnvel læra nokkur orð, á táknmáli.

 

Helga Birgisdóttir

 


á Skörinni

Héléne Magnússon, sú hin sama og kenndi okkur að gera franskar vínegrettur (salatdressingar) og að prjóna heilu flíkurnar með rósaleppaprjóni, opnar sýningu í dag á Skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN, Aðalstræti 10 kl. 17.00.
 
ForsidaheimasidaÞar eru sjálflýsandi túlípanar og álfar úr þæfðri ull í aðalhlutverki auk rósaleppa og vínegretta. 
 
Héléne hefur búið á Íslandi 13 ár og bókin um vínegretturnar hefur komið út á fjórum tungumálum og Rósaleppabókin kom út á þremur - þar á meðal rússnesku. 
 
 

Sýningin er opin virka daga frá kl. 9.00 til 18.00 og fimmtudaga til kl. 22.00 Laugardaga og sunnudaga frá kl. 12.00 – 17.00.

Sýningin stendur til 16. júni 2008


« Fyrri síða | Næsta síða »

Salka skrifar

Bókaútgáfan Salka ehf
Bókaútgáfan Salka leggur megináherslu á útgáfu bóka sem höfða til kvenna en einnig handbóka af ýmsu tagi fyrir alla.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Bækur

Nýjar bækur

  • Rafn Hafnfjörð og Ari Trausti Guðmundsson: Focus on Iceland
    Falleg ferðahandbók með yfir 600 myndum af Íslandi sem teknar voru af Rafni Hafnfjörð með texta eftir Ara Trausta Guðmundson
    *****

Tónhlaða

Heiðdís Norðfjörð - Mídas konungur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband