Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bækur

Vísindin að baki ríkidæmi; fyrirlestur í Hafnarfirði

jon-grenoble

Laugardaginn 15. nóvember mun Jón Lárusson þýðandi bókarinnar Vísindin að baki ríkidæmi, halda fyrirlestur um efni bókarinnar,  en bókin kom út þann 7. nóvember. Verður fundurinn haldinn í Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði, efri hæð. Eru allir velkomnir á fundinn.

Bókin Vísindin að baki ríkidæmi eftir Wallace D. Wattles kom út árið 1910 og litið er til hennar sem grunnrits í fræðunum um lögmál aðdráttaraflsins. Boðskapur höfundarins er sá að með krafti skapandi hugsunar og í staðfastri trú um að það muni rætast, þá muni einstaklingurinn laða til sín það sem hann hugsar. Wallace bendir á að við eigum ekki að stunda samkeppni heldur eigi einstaklingurinn að miðla öðrum af sínum skapandi krafti, hvetja til dáða og opna nýjar leiðir til að bæta sjálfan sig og veröldina alla.

Þrátt fyrir að bókin sé að nálgast 100 ára aldurinn hafa vinsældir hennar sjaldan verið meir en nú, enda á hinn uppörvandi boðskapur hennar fullt erindi til okkar í dag. Bókin opnar nýjar víddir og upplýsir okkur um krafta sem við almennt gerum okkur ekki grein fyrir að leynast innra með okkur.

Frá því Jón kynntist þessum fræðum fyrst fyrir tæpum 30 árum síðan, hefur hann aflað sér viðamikillar þekkingar á þessu sviði og er nú tilbúinn að miðla þeirri þekkingu til annarra. Eða eins og hann segir sjálfur "Þegar ég lít til baka á þessi 30 ár, þá sé ég að í hvert sinn sem ég hef framkvæmt hluti á hinn ákveðna hátt, þá hefur mér tekist allt það sem ég hef ætlað mér. Að sama skapi hefur verr gengið þegar ég hef horfið af þeirri leið að gera hlutina á hinn ákveðna hátt".

 Jón hefur sett upp heimasíðu tileinkaða bókinni: www.rikidaemi.is


Manstu eftir mér?

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifaði skemmtilega grein um bókina Remember me , sem kemur út hjá Sölku eftir áramót, í Morgunblaðið í dag. Bókin er eftir sama höfund  bækurnar um kaupalkann óforbetranlega; Sophie Kinsella. Hún heitir í rauninni Madaleine Wickham og hún vann sem fjármálablaðakona (hmm – hljómar kunnuglega) áður en hún sneri sér að ritstörfum. Madaleine hefur gefið út átta bækur undir nafninu Sophie Kinsella og fimm af þeim eru um Becky Bloomwood. Hún hefur jafnframt gefið út sjö bækur undir sínu raunverulega nafni. Fyrsta bók hennar kom út árið 1995 og hefur hún þ.a.l. skrifað 15 bækur á 13 árum – rúmlega ein á ári.

Hérna er það sem Kolbrún hefur um bókina Remember me að segja

 sophie kinsella
SOPHIE Kinsella hefur sérhæft sig í samningu gaman- og ástarsagna sem njóta vinsælda víða um heim, einnig hér á landi. Bækur hennar hafa yfirleitt fen...

SOPHIE Kinsella hefur sérhæft sig í samningu gaman- og ástarsagna sem njóta vinsælda víða um heim, einnig hér á landi. Bækur hennar hafa yfirleitt fengið ágæta dóma þeirra gagnrýnenda sem átta sig á gildi skemmtibókmennta. Þekktust er Kinsella fyrir bókaflokk sinn um kaupalkann óborganlega Rebeccu Bloomwood. Hér er Rebecca víðs fjarri og Kinsella á nýjum slóðum í bók sem hefur setið ofarlega á metsölulista Eymundsson undanfarnar vikur.

 

Í Remember Me? vaknar Lexi til meðvitundar á sjúkrahúsi eftir bílslys. Hún telur sig vera tuttugu og fimm ára og ógifta og blanka en henni er sagt að hún sé tuttugu og átta ára gömul og gift myndarlegum milljarðamæringi. Einmitt draumalífið sem hana hafði alltaf dreymt um. En hið fullkomna líf reynist ekki svo fullkomið. Lexi þarf að takast á við líf sem hún var búin að gleyma og kynnast hinum forríka en gallaða eiginmanni sínum. Hún lendir í sérstæðum aðstæðum þar sem vinir hennar í fyrra lífi snúast gegn henni og hafa sannarlega ástæðu til. Eins og við er að búast kynnist hún karlmanni sem vekur forvitni hennar og ástin virðist á næsta leiti.

 

Frásögnin einkennist af léttleika og áreynsluleysi sem eru helstu kostir Kinsellu sem höfundar. Hún kemur ekki á óvart en heldur sig á öruggum slóðum notalegrar gamansemi. Bókin er því ágætis skemmtilestur fyrir þá sem leita í góða afþreyingu og vilja ástir, kímni og hæfilega blöndu af misskilningi og spennu.

 

Þetta er bók sem vekur ljúfar tilfinningar og kemur lesandanum í gott skap. Og svo sannarlega veitir ekki af slíkri upplyftingu nú um stundir.


Maxine áritar bækur

Á morgun laugardag mun Maxine Gaudio, - höfundur metsölubókarinnar Ferðalagið að kjarna sjálfsins, árita bókina í Norður - Kringlu (gömlu - kringlu). Maxine byrjar kl: 14 og áritar eins og penninn þolir þangað til klukkan slær 16. Við hvetjum alla sem hafa keypt og/eða vilja kaupa bókina til að koma og heilsa uppá höfundinn og fá áritun.

Bauð fram aðstoð sína fyrir Íslendinga

vm01Victoria Moran hinn þekkti fyrirlesari og rithöfundur verður með fyrirlestur á Grand Hótel Reykjavík fimmtudagskvöldið 30 október kl. 19:00. Aðgangur er ókeypis á meðan að húsrúm leyfir.

Tilgangurinn með komu hennar til Íslands er að hvetja Íslendinga til að halda áfram, bera höfuðið hátt og láta ekki deigan síga þótt á móti blási .

Vegna tengsla hennar við Ísland og mikils áhuga á landi og þjóð þá bauðst hún til að koma hingað og vera með hvetjandi fyrirlestur og miðla af reynslu sinni. Hún hefur séð hina miklu umfjöllun um fjármálakreppuna á Íslandi, og hún upplifir að fréttaflutningur sé nánast eingöngu á neikvæðum nótum.

Með jákvæðum huga hefu Victoriu tekist að þróa öflugar aðferðir til að gæða hversdagslífið töfrum og efla innri frið og hugarró.

Með reynslu sinni og visku miðlar hún á einfaldan og greinargóðan hátt og vísar á leiðir til að öðlast kjark og yfirvegun; sjálfstraust, bjartsýni og vellíðan svo fólk megi njóta hverrar stundar til hins ítrasta.

Victoria hefur gefið út 10 bækur sem fjalla um hennar lífsýn og aðferðir til að lifa lífinu á jákvæðan hátt. Hún er mjög eftirsóttur fyrirlesari í Bandaríkjunum og hefur haldið fjölmarga fyrirlestra um allt landið og raunar víða um heim. Nánari upplýsingar um hana er að finna á heimasíðu hennar www.victoriamoran.com.

Hjá Sölku hafa komið út þrjár bækur á íslensku eftir Victoriu. Þær heita; 101 hollráð, Fegraðu líf þitt og Láttu ljós þitt skína.

Victoria hefur áður komið til Íslands og henni þykir vænt um landið. Henni finnst að Íslendingar gætu haft gott af því að fá jákvæða strauma og stuðning frá erlendum aðilum við þetta mótlæti. Þess vegna ákvað hún að koma og vera með hvetjandi fyrirlestur á Grand Hótel Reykjavík næst komandi fimmtudagskvöld. Eins og áður hefur komið fram gerir Victoria þetta að eigin frumkvæði og Íslendingum að kostnaðarlausu. Grand Hótel býður henni upp á gistinguna. Fyrirlesturinn hefst klukkan 19:00 og stendur í um það bil klukkustund. Eftir það gefst áheyrendum úr sal tækifæri til að spyrja spurninga. Áformað er að spurningum ljúki klukkan 20:30.


Síðasti fyrirlesturinn


Randy Pausch, höfundur bókarinnar, Síðasti fyrirlesturinn (Last Lecture), lést fyrir aldur fram, aðeins 46 ára gamall. Þegar hann fékk að vita að hann ætti örfáa mánuði eftir ólifaða varð honum hugsað til hefðarinnar um „síðasta fyrirlesturinn“ en undir þeirri yfirskrift eru kennarar í bandarískum háskólum beðnir um að líta yfir starfsferil sinn áður en þeir ljúka störfum.

Þegar hann þurfti að kveðja sinn starfsvettvang í Carnegie Mellon háskóla þar sem hann var prófessor í tölvunarfræðum ákvað hann að fjalla um lífsferil sinn í stað starfsferils. Hann beindi þó ekki sjónum sínum að endalokunum heldur mikilvægi þess að stefna að ákveðnu takmarki.

Síðasti fyrirlesturinn hlaut heimsathygli vegna hinna uppörvandi skilaboða sem sett eru fram af einstökum húmor, visku og skilningi á mannlegu eðli.

Ólöf Pétursdóttir þýddi bókina.


Nútíð og framtíð

TarotTarotspilin eru allra spila sérstæðust og leyndardómsfyllst. Merking þeirra er mögnuð, þau segja til um merka atburði, siðferðilegan styrk  einstaklingsins og andlega og dulræna hæfileika. Við notkun þeirra sjáum við innri mann okkar í nýju ljósi. Þau er okkur hvorki hliðholl né andstæð en þau senda boð og ráðleggingar. Hvort eða hvernig við nýtum okkur skilaboð þeirra er undir sjálfum okkur komið. Tarot er öðru fremur huglægt viðhorf og sýnir hvaða augum manneskjan lítur lífið og tilveruna.
    Mikilvægt er að átta sig á og vera meðvitaður um þá víðáttumiklu braut sem við göngum, með öllum sínum hindrunum. Tarotspilin hjálpa til við að finna réttu leiðina. Að læra að lesa úr þeim er eins að læra nýtt, fágætt og gagnlegt tungumál. Það á ekki að meðhöndla spilin af léttúð eða gáleysi því við erum með sterk andleg og dulræn öfl fyrir framan okkur þegar við leggjum Tarotspilin.
    Þessi bók er ætluð byrjendum og því er saga spilanna stuttlega rakin í upphafi og getið um eldri meistara í þessum fræðum. Síðan er spilunum lýst, merking þeirra túlkuð, og að lokum er sýnt hvernig leggja á spilin. Fyrir valinu hafa fyrst og fremst orðið einfaldar lagnir með fáum spilum sem auðvelt og fljótlegt er að lesa úr þegar búið er að læra táknin. En eftir því sem leiknin eykst má leggja spilin á ýmsa vegu og nota fleiri spil, jafnvel allan stokkinn.

Útvarpssagan: Rigning í nóvember

Mánudaginn 20. október klukkan 15.03 hefst á Rás 1 lestur nýrrar útvarpssögu. Það er Rigning í nóvember eftir Auði A. Ólafsdóttur. Eline McKay les. – Sögumaður er ung kona sem stendur á tímamótum. Hún stígur upp úr volgri hjónasæng og heldur í ævintýralegt ferðalag um myrkt og blautt landið. Með í för er heyrnarlaust barn sem henni hefur verið falið að gæta. Þar með hefst leit að týndum þræði, leyndarmál úr fortíðinni mæta söguhetjunni í kaldri rigningunni. Rigning í nóvember var önnur saga höfundarins, sem er listfræðingur að mennt. Sagan kom út 2004 og hlaut þá bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Hún er 19 lestrar.


Ferðalagið í fyrsta sæti

reiki_hand2Það kom fáum á óvart, þegar fréttirnar bárust, að Ferðalagið að kjarna sjálfsins  eftir Maxine Gaudio, hafi lent í fyrsta sæti metsölulista Pennans - Eymundsson. Bókin á vel við tímum uppstokkunar - þegar efnishyggjan og græðgin hafi lent í lægra haldi og almenningur á því að sjálfið og nærveran sé það sem skipti máli.

Maxine veitir leiðsögn um hvernig við eigum að skoða mynstrið í lífsvenjum okkar, sleppa tökunum, losa okkur úr viðjum vanans og lifa sátt við okkur sjálf og samferðafólkið. Ennfremur kennir hún okkur að njóta ferðalagsins og sættast við fortíðina.

 Maxine er með eigin heimasíðu á http://www.maxinegaudio.com/ þar sem hægt að nálgast nánari upplýsingar um hana og störf hennar.


Hvernig ætli sé best að rækta kartöflur?

Hildur_Hakonar2Listakonan og grasnytjungurinn Hildur Hákonardóttir mun fjalla um sögu kartöflunnar, ræktun og aðferðir því tengdu í Blómavali Skútuvogi, laugardaginn 11. október. Hún gaf út bókina Blálandsdrottingin og fólkið sem  ræktaði kartöflurnar síðsumars og mun fjalla um mismunandi tegundir og hverjar duga best í mismunandi umhverfi. Ásamt því tengir hún kartöfluræktun íslenskri menningarsögu.

Hildur, sem einnig er höfundur hinnar sívinsælu bókar Ætigarðurinn - handbók grasnytjungsins, er þekkt fyrir líflega og grípandi frásagnargleði. Hildur mun svara öllum fyrirspurnum um ræktun og spjalla um hvernig er hægt að nota kartöflur og grænmeti í fjölbreytta, holla og ódýra matargerð sem ekki er úr vegi nú, á tímum.Kynningin verður í Blómavali Skútuvogi 16, 104 Reykjavík, laugardaginn 11. okt. næstkomandi kl. 14.00 – 16.00.  


Borða, biðja, elska

 eatpraylovecoffeemugBráðum kemur út hjá Sölku bókin Borða, biðja, elska eftir Elizabeth Gilbert. Hún hefur vakið mikla athygli og setið í efstu sætum metsölulista bæði vestan hafs og austan og hlotið einróma lof. Hún var nefnd sem ein af 100 eftirtektaverðustu bókum ársins 2006 af The New York Times og valin ein af 10 bestu bókum ársins af Entertainment Weekly. Elizabeth var valin ein af 100 áhrifaríkustu persónum heimsins af Time tímaritinu 2008 og er reglulegur gestur í þætti Oprah Winfrey sem telur bókina  eina af þeim áhugaverðustu sem komu út 2006.

 Þegar Elizabeth Gilbert var um þrítugt hafði hún allt sem ung nútímakona getur óskað sér: Góða vinnu, traustan eiginmann og fallegt heimili – en einhverra hluta vegna var hún ekki hamingjusöm heldur ráðvillt og stressuð. Hér segir Elizabeth frá því þegar hún snýr við blaðinu, losar sig við eiginmann og atvinnu, tekur föggur sínar og fer út í heim. Eftir erfiðan skilnað og uppgjör við fyrri lífsgildi nýtur hún lífsins og matarins á Ítalíu, leggur síðan stund á andlega íhugun á Indlandi og leitar loks jafnvægis milli holdlegra og andlegra hugðarefna á Balí í Indónesíu. Eftir að hafa skoðað lífið frá nýjum sjónarhóli og með augum fólks í fjarlægum menningarheimum finnur hún hamingju og hugarró og er tilbúin að snúa heim aftur.

Verið er að undirbúa kvikmyndun bókarinnar og mun Julia Roberts leika Elizabeth og búist er við að myndin verði tilbúin 2010.  julia-roberts

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Salka skrifar

Bókaútgáfan Salka ehf
Bókaútgáfan Salka leggur megináherslu á útgáfu bóka sem höfða til kvenna en einnig handbóka af ýmsu tagi fyrir alla.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Nýjar bækur

  • Rafn Hafnfjörð og Ari Trausti Guðmundsson: Focus on Iceland
    Falleg ferðahandbók með yfir 600 myndum af Íslandi sem teknar voru af Rafni Hafnfjörð með texta eftir Ara Trausta Guðmundson
    *****

Tónhlaða

Heiðdís Norðfjörð - Mídas konungur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband